Lýsing
Jafnvægisbretti sem er 40 x 58 cm. Stillanlegt bretti sem getur bætt jafnvægi og styrkir vöðva. Getur hjálpað þér að standa lengur við skrifborðið auk þess að geta dregið úr stoðkerfisóþægindum eins og stífleika í mjóbaki, mjöðmum og vöðvabólgu.
Eiginleikar
Betri líkamsbeiting við skrifborðið
Undir brettinu eru mjúkar gúmmíkúlur sem veita létta fjöðrun og þannig getur dregið úr spennu í mjöðmum og mjóbaki. Þegar staðið er á brettinu er hægt að rugga sér fram og til baka og til hliðar. Þannig má draga úr spennu í stoðkerfi og bæta við léttri hreyfingu inn í vinnudaginn.
Jafnvægisbretti
Hægt er að stilla brettið á tvo vegu. Annars vegar þar sem kúlurnar eru staðsettar í jaðrinum. Það er einfalt að færa kúlurnar innar á brettið og þá er verið að styrkja kvið- og bakvöðva og vöðva í fótleggjum. Á sama tíma er jafnvægið þjálfað og þetta getur þú gert á sama tíma og þú sendir tölvupóstinn eða tekur símafund. Air soft brettið er einnig tilvalið til notkunar á endurhæfingarstöðvum og í sjúkraþjálfun. Bætir líkamsstöðu og getur verið forvörn gegn meiðslum.
tækniupplýsingar
Málsetningar: | Lengd: 58 sm, Breidd: 40 sm, Hæð: 11 sm |
Efni: | Timbur og gúmmí |
Litur: | Birki |
Hámarksþyngd notanda: | 160 kg. |
Þyngd vöru: | 3,5 kg. |
Ábyrgðir: | Íhlutir: 1 ár |