Nánari upplýsingar
Tækin frá Norwell eru viðhaldslítil þar sem að þau eru framleidd úr duftlökkuðu ryðfríu stáli, og eru hönnuð til að þola skandinavískt veðurfar. Lang flestir geta æft í tækjunum frá Norwell og notar einstaklingurinn sýna eigin líkamsþyngd. Engar stillingar eru á tækjunum sem gerir þau einföld í notkun og dregur úr slysahættu. Arkitektar Norwell í Danmörku hanna hreystigarðana út frá staðsetningu og landslagi auk þess sem sérfræðingar Norwell koma með tillögu að samsetningu tækja í hreystigarða. Tækin eru vottuð af TUV SUD skv. EN1176 og EN957 og er 10 ára ábyrgð á framleiðslugöllum. Auk þess er 2ja ára ábyrgð á gúmmí, plasti og hreyfiliðum.